23.3.2010 | 23:07
gras og stúka .
hér er linkur http://www.andriki.is/default.asp?art=02022010 og er hann virkileg áminning til þessara blessaðra kjörinna fulltrúa okkar í Fjarðabyggð semráðstafa útsvari okkar.
en hann kemur í huga manns þegar til umræðu í bæjarráðu er fjáraustur í stúku á þennan blessaða grasvöll á Eskifirði ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2010 | 13:17
Lætur lítið yfir sér þessi frétt
En enga að síður stórfrétt fyrir íbúa Fjarðabyggðar,það að Hafnarsjóður Fjarðabyggðar skuli vera rekinn með tæplega 200 mkr. hagnaði. Það þýðir að íbúarnir þurfa ekki að borga útsvar sem endar í botnlausri hít sem skuldir og tap hafnarsjóða þessa lands eru . Vonandi að það verð hægt í fyrirsjáanlegri framtíð að nota sjóð þennan til frekari hafnaruppbyggingar ásamt þvi að nota peninginn fyrir íbúa Fjarðabyggðar beint í aðra þjónustu. Ekki veitir af sérstaklega þegar hálfgerðar vörtur hvíla á rekstrinum t.d. leigan á slökkvistöð vorri að Hrauni ásamt hinni hitt þó heldur fallegu fótboltaskemmu..
kv. ingi
|
Eftirlitsnefnd hafi eftirlit með höfnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2010 | 12:41
látum hagsmuni heildarinnar ráða.
Hér má kynnar sér arðsemi leiðanna http://www.leid.is/index.php?flokkur=400&id=164
Þá fyrst er hægt að mynda sér skoðun á þessu, og mín skoðun er skýr, veljum mestu styttingu sem völ er á miðað við raunhæfar forsendur.
Svo lengi sem notaðir eru raunhæfir útreikngar,annað en var gert með Héðinsfjarðargöngin og hálendisveginn yfir Öxi ! (milli héraðs og Berufjarðar)
kv. ingi
edit: Á síðustu tveimur og hálfa árið gæti Björgunasveitin Ársól Reyðarfirði verið búin að spara sér nokkra km. Fljótt reiknað þá lítur það svona út, 4 ferðir fram og til baka sem gerir 8 ferðir * c.a. 25 km og kemur þá út samtals 200 km. Það eru nokkrir olíulítrar,miðað við bílana sem voru á ferðinni þá eru það c.a. 18 ltr/100 =36ltr*150kr/ltr=5400 kr. og munar um minna.
|
Andstaða við Húnavallaleið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 3.2.2010 kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.2.2010 | 12:04
Komiði nú heil og sæl
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2009 | 19:01
Þá er formlegum framkvæmdum lokið .
Erum við þá að tala um stærstu einstöku framkvæmd Íslandssögunnar.
Var þeim gerð skil í fréttum Stöðvar 2 og fóru þeir hlutlausu leiðina í frásögn hennar.
Ríkissjónvarpið sagði hinsvegar frá þeim í gærkveldi í frétt númer 10 í kvöldfréttartímanum. Var þeirra frásögn alveg gjörsamlega útúr korti og alls ekki í samhengi við þennan áfanga sem haldið var uppá punktur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2009 | 22:51
Sama sveitarfélag ?
en skrifað stendur á vef Fjarðabyggðar úr fundargerðum bæjarráðs
FUNDARGERÐ
bæjarráðS fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 129
Fundur haldinn í bæjarráði Fjarðabyggðar þriðjudaginn 6. janúar 2009 kl. 9:00 í fundarsal bæjarskrifstofu að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði.
Mætt eru: Guðmundur Þorgrímsson formaður, Guðmundur R. Gíslason, Valdimar O. Hermannsson, Helga Jónsdóttir bæjarstýra og Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu.
3.Beiðni um styrk vegna leitarhunda
Bréf Björgunarsveitarinnar Gerpis frá 15.desember. Bæjarráð samþykkir að veita 200.000 kr. styrk vegna leitarhunda á árinu 2008.
4.Beiðni um styrk vegna reksturs Björgunarsveitarinnar Gerpis
Bréf Björgunarsveitarinnar Gerpis frá 15.desember um rekstrarstyrk. Bæjarráð samþykkir að veita 600.000 kr. rekstrarstyrk vegna 2008.
FUNDARGERÐ
BæjarráðS fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 139.
Fundur haldinn í bæjarráði Fjarðabyggðar þriðjudaginn 3. mars 2009 kl. 9:00 í fundarsal bæjarskrifstofu að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði.
Mætt eru: Guðmundur R. Gíslason varaformaður, Þorbergur Hauksson, Valdimar O. Hermannsson, Helga Jónsdóttir bæjarstýra, Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála og Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu.
2.Umsókn um styrk vegna húsbyggingar
Framlagt bréf Björgunarsveitarinnar Ársólar frá 16.2. þar sem farið er fram á styrk til að ljúka viðbyggingu á húsi sveitarinnar Þórðarbúð. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um frekari styrki til sveitarinnar.
Endar með því að einhver á eftir að bryðja endajaxlana og kyngja þeim einn góðann veðurdag ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.2.2009 | 23:43
Hvalur
hvalur skal nú skotinn af miklum móð í sumar og ber að fagna því :)
kv. ingi lár
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.12.2008 | 21:09
Hrós vikunnara
Fær að þessu sinni
Síldarvinnslan í Neskaupstað
fyrir að leggja uppsjávarveiðiskipinu Birting NK 119 við bryggju hér á Reyðarfirði og
lýsa upp með jólaséríu :) yfir jólatörnina.
kv. ingi lár
Bloggar | Breytt 20.12.2008 kl. 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.12.2008 | 00:16
Áramótin nálgast .
Þegar líða tekur að jólum þá fer flugeldavertíðin í gang hjá okkur björgunar og slysavarnarfólki víða um land. Þetta er búinn að vera partur af jólastemningunni hjá manni í sennilega 12 ár. Og það er alltaf í mestu uppáhaldi hjá mér þegar kveikt er í brennunni,og þegar loks við sendum flugeldasýninguna af stað uppúr níu á gamlárskvöld.
Við förum ekki varhluta af gengishækkunum í flugeldasölunni frekar en annarstaðar í þjóðfélaginu en svona er víst lífið þessa dagana en lítið hægt að gera annað en vona að við verðum styrkt með kaupum á þessu dóti :)
Annars er bloggleysið svosem ekkert annað en leti, skoðanirnar eru á sínum stað eftir sem áður, nenni bara ekki að koma þeim niður í gegnum puttana á lyklaborðið þessa dagana einhverra hluta vegna !
sennilega útaf eftirvinnuvinnunni..
Er búinn að vera í byggingastússi síðustu mánuðina einsog venjulega en það er þetta blessaða björgunarsveitarhús sem á hug manns allann. Erum búnir að klæða í loftin í hluta af húsinu og eru komin gólfefni á sömu slóðir og loftræsting. Í framhaldinu förum við að taka hluta af því í notkun. Fer kanski að koma með myndir við tækifæri. en núna í desember eru 2 ár síðann við fórum formlega að byggja og fer nú að sjá fyrir endann á því. Sem betur fer vissi ég persónulega ekki hvað ég var að fara útí með félögum mínum þegar við byrjuðum en þá hefði ég sennilega ekki farið úti þetta þar má segja að Allur frítiminn í 2 ár sé að baki í byggingunni og talið í þúsundum klukkustunda !...en enga síður gaman eftirá .
kv. ingi lár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2008 | 23:53
Jæja.
Bið alla þá sem eru ennþá að væla útaf álverinu að halda kjafti. Það er eiginlega komið meir en nóg af þessu bulli.
En þetta fer dáltið í taugarnar á mér því sennilega
væri ég ekki að vinna í landi hér á Reyðarfirði
ég væri ekki búinn að hækka um 70% í kaupi á 5 árum,
ég væri ekki búinn að byggja og stækka björgunarsveitarhúsið (ásamt fleirum auðvitað)
ég væri ekki búinn fá systkini mín öll aftur til baka í bæinn (fyrir utan alla hina ættingjana og vinina)
ég væri ekki búinn borða allar pitsurnar og hamborgana í stærri Olís sjoppu og kjafta við félagana.
ég væri ekki búinn að fara sem vélstjóri á dráttarbátnum Vetti
get haldið svona áfram endalaust...
kv. ingi lár
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



eirag
hinriksson
grj
730
sirarnar
gthg
730bolungarvik
hjordis730
doddinn









